LÍFF3LE05 lífeðlisfræði vorönn2023


Byrjað er á að fjalla um helstu vefjagerðir dýra og hugtakið samvægi. Meginefni áfangans er svo mannslíkaminn í heild sinni. Öll helstu líffærakerfi mannsins eru tekin fyrir; meltingarfærakerfi, taugakerfi, skynfæri, innkirtlakerfi, stoðkerfi, loftskiptakerfi, hringrásarkerfi, vessakerfi, ónæmiskerfi og æxlunarfærakerfi. Einstök líffæri innan hvers líffærakerfis eru skoðuð með áherslu á staðsetningu, hlutverk, gerð og virkni. Starfsemi líffæra og líffærakerfa er skoðuð í samhengi við samvægi og dæmi tekin um þegar samvægið fer úr skorðum. Aðaláhersla áfangans er á lífeðlisfræði mannsins, þó nokkur dæmi séu tekin hjá öðrum dýrategundum til samanburðar.