Farið verður yfir leiklistarsögu í grófum dráttum frá tímum forngrikkja til dagsins í dag. Ítarlegar verður farið í vestræna leiklistarsögu 20. og 21. aldarinnar og nemendur kynntir fyrir helstu leikskáldum og áhrifavöldum innnan hennar og þróun sögunnar skoðuð útfrá viðmiðum og gildum samfélagsins á hverjum tíma. Einnig verður farið yfir íslenska leiklistarsögu  í fyrirlestrum og umræðutímum.