Í áfanganum verður farið yfir alla helstu verkferla leikstjórans, allt frá greiningu handrita og persóna í skipulag á æfingum sem og samvinnu við leikara og aðra listræna stjórnendur. Áhersla verður lögð á mikilvægi heildarinnar, bæði á sviðinu sem og utan þess.